Skip to content

Tix.is

Salurinn

  • 21. mar. - kl. 20:00

Miðaverð:8.900 kr.

Um viðburðinn

Þokkabót flytur úrval laga sinna frá árunum 1974-1978 og endurvekur tíðaranda Álafossúlpunnar, með fulltingi úrvals tónlistarfólks.


1974 lék Þokkabót inn á sína fyrstu plötu, Upphafið“, sem varð feykivinsæl með Litla kassa í fararbroddi. Í kjölfarið fylgdu 4 LP plötur og nokkur lög að auki. Á tónleikunum flytur hljómsveitin lög úr söngvasafni sínu og fær, í völdum lögum, til liðs við sig kammerkór Akraness undir stjórn Hilmars Þórs Agnarssonar.
  
Þeir sem skipað hafa Þokkabót og skipa jafnvel enn eru Gylfi Gunnarsson, Halldór Gunnarsson, Ingólfur Steinsson, Magnús Einarsson, Eggert Þorleifsson, Ragnar Eymundsson, Leifur Hauksson Sigurjón Sighvatsson, Haraldur Þorsteinsson og Lárus Grímsson. Sérlegur aðstoðarmaður verður Ásgeir Óskarsson.