Sif Margrét Tulinius fiðluleikari og Richard Simm píanóleikari hafa starfað um árabil sem einleikarar og tekið þátt í flutningi á kammertónlist bæði hér á Íslandi sem og erlendis. Þau stilla nú sína strengi saman í þessari stórbrotnu efnisskrá með verkum eftir César Franck og Ludwig van Beethoven.
Sif Margrét Tulinius fiðluleikari hefur verið atkvæðamikil í íslensku tónlistarlífi um árabil. Að einleikaraprófi loknu vorið 1991 hlaut hún Fulbright styrk til frekara náms í Bandaríkunum þaðan sem hún lauk meistaranámi sínu fra´ New York i´ samstarfsverkefni milli Juilliard to´nlistarha´sko´lans og Stony Brook ha´sko´lans. Hún fluttist þá til Evópu og lék þar ásamt ýmsum tónlistarhópum á fjölmörgum tónlistarhátíðum víðs vegar um heiminn.
Haustið 2000 var Sif Margrét ráðin til starfa í sto¨ðu 2. konsertmeistara við Sinfo´ni´uhljo´msveit I´slands. Hún gegndi þvi´ starfi allt til a´rsins 2016 er hu´n fluttist til Berli´nar þar sem hún bjó um nokkurra ára skeið og lék ásamt fjölmörgum virtum tónlistarhópum m.a. Berliner Philharmoniker. Sif hefur komið fram sem einleikari með Sinfo´ni´uhljo´msveit I´slands m.a. i´ flutningi a´ fiðlukonsert Gubaidulina, Fylgjum Þorkels Sigurbjo¨rnssonar og Partitu eftir Lutoslawski.
Sif kemur reglulega fram á kammertónleikum og hefur bæði sja´lfstætt og a´samt o¨ðrum tekið virkan þa´tt i´ flutningi nu´ti´mato´nlistar. Einleiksdiskur hennar De Lumine kom út í nóvember síðastliðnum og innheldur hann nýlegar hljóðritanir af þremur nýjum íslenskum einleiksverkum fyrir fiðlu. Flutningur Sifjar Margrétar á De Lumine hefur hlotið lof gagnrýnenda bæði íslenskra og erlendra tónlistartímarita og var De Lumine valinn geisladiskur ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum í mars 2025.
Richard Simm er fæddur í Newcastle á Englandi og hefur verið búsettur á Íslandi um langa hríð. Hann nam við Royal College of Music í London hjá Bernard Roberts og við Staatliche Hochschule für Musik í München hjá Erik Then-Bergh. Hann vann til fjölmargra verðlauna á námsárum sínum, fékk þar á meðal tvenn verðlaun fyrir túlkun sína á verkum Chopin. Richard hefur haldið tónleika í Wigmore Hall og Purcell Room í London og hefur auk þess komið fram á ótal tónleikum í Þýskalandi, Bandaríkjunum og á Íslandi, þar sem einleik hans hefur verið lýst sem einu af best geymdu leyndarmálum landsins.