Um viðburðinn
Lagahöfundurinn og söngkonan Klara
Elias hefur átt kaflaskiptan feril; fyrst með stúlknabandinu Nylon, svo í Los
Angeles með Charlies og nú sem sólólistamaður hér heima. Tónlist hennar hefur
verið flutt af popplistamönnum um allan heim auk þess sem lög hennar hafa
hljómað í sjónvarpsþáttum á borð við Shameless, Selling Sunset , Love Island og
Love is blind.
Söngvaskáld er ný röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila lög sín og segja frá tilurð
laganna. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríkra tónlistarmanna sem
semja og spila sín eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi nýja tónleikaröð
mun beina athygli að þessum listamönnum, varpa ljósi á margvíslegar aðferðir
listamanna við lagasmíðar og gefa þjóðþekktum lögum meiri dýpt sem fylgir því
að heyra sögur af tilurð þeirra.
Áskrift á Söngvaskáld
Ef keyptir eru miðar á alla tónleika raðarinnar fæst miðinn á 4.000 kr