Hljómplatan “Nóttin og þú” fangar íslenska stemningu sjötta áratugarins
en þar hljóma lög Steingríms M. Sigfússonar í útsetningum Gísla Magna, sonarsonar
Steingríms. Gísli flytur þar helstu perlur Steingríms með úrvals hljómsveit og kynnir einnig
fyrir hlustendum úrval laga Steingríms sem voru helst þekkt í afmörkuðum hlutum Vestfjarða.
Upplifið ball stemningu, sjávarþorparómantík og ljóma sjötta áratugarins með Gísla Magna og bandi.
Á sviðinu verða:
Söngur: Gísli Magna
Raddir: Gísli Gunnar Didriksen Guðmundsson, Hafsteinn Þórólfsson
Píanó: Sunna Gunnlaugs
Bassi: Gunnar Hrafnsson
Gítar: Pétur Valgarð Pétursson
Trommur: Scott McLemore
Hljóðmaður: Hafþór „Tempó“ Karlsson