Tix.is

Salurinn

Um viðburðinn

Lögin og sögurnar úr leikhúsunum flutt af þeim Halla og Góa við undirleik Jóns Ólafssonar. Fjör, dramatík, bull og allt þar á milli!

Eftir vel heppnaða tónleika í vor ætla félagarnir þrír að endurtaka leikinn 2.september nk vegna fjölda áskorana

Leikararnir Halli og Gói hófu að syngja lögin úr leikhúsinu norðan heiða árið 2007 þegar þeir störfuðu hjá Leikfélagi Akureyrar. Öll eru lögin úr söngleikjum eða leikritum sem þeir hafa tekið þátt í eða dreymir um að taka þátt í. Þeir syngja og segja sögur á milli laga, sannar og ósannar. Þarna mun fjörið, dramatíkin og bullið ráða ríkjum. Þeim til aðstoðar er Jón Ólafsson, tónlistarmaður.