Vetrarferðin (Winterreise) er
af mörgum talin einn af hátindum ljóðasöngsins, þar sem tónlist Franz Schuberts
og ljóð Wilhelms Müllers fléttast saman á snilldarlegan hátt. Tenórsöngvarinn
Benedikt Kristjánsson hefur hlotið mikið lof og verðlaun fyrir söng sinn víðs
vegar um heim á undanförnum misserum, sérstaklega fyrir flutning á tónlist
eftir J. S. Bach. Í Salnum tekst hann á við þetta mikla stórvirki
tónbókmenntanna í fyrsta skipti á Íslandi og með honum til fulltingis er norski
píanóleikarinn Mathias Halvorsen. Tónleikarnir verða án efa stórviðburður í
íslensku tónlistarlífi.
Flytjendur:
Benedikt Kristjánsson, tenór
Mathias Halvorsen, píanó
Syngjandi í Salnum er ný tónleikaröð sem hóf göngu sína í Salnum í Kópavogi í febrúar 2022. Listrænn stjórnandi hennar er Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir söngkona. Í röðinni er boðið upp á söngtónleika með nokkrum af fremstu klassísku söngvurum Íslands. Hverjir tónleikar verða nokkurs konar ,,portrett“ tónleikar, sem gefa mynd af listamanninum. Á blandaðri efnisskránni er undirstöðuefnið oft íslenskur og erlendur ljóðasöngur ásamt óperuaríum. Tónleikaröðin býður upp á sjö tónleika yfir tónleikaárið 2022-2023.