Örvar Kristjánsson var einn ástsælasti harmónikkuleikari þjóðarinnar. Á sextíu ára ferli gaf hann út þrettán hljómplötur sem áttu miklum vinsældum að fagna. Á tónleikum í Salnum í Kópavogi 8. apríl næstkomandi verða þekktustu lög Örvars leikin og sungin.
Ekki missa af þessum einstaka viðburði.
Söngur:
Grétar Örvarsson
Þórhildur Örvarsdóttir
Karl Örvarsson
Harmónikka:
Jón Þorsteinn Reynisson
Margrét Arnardóttir
Hljómsveit:
Grétar Örvarsson: Hljómborð
Sigfús Óttarsson: Trommur
Eiður Arnarsson: Bassi
Pétur Valgarð Pétursson: Gítar
Þórir Úlfarsson
Hljóðvinnsla: Ásmundur Jóhansson
Umsjón: Grétar Örvarsson
Stutt æviágrip:
Örvar Kristjánsson var fæddur 8. apríl 1937 og var Hornfirðingur í húð og hár.
Strax sex ára gamall fór hann að prófa sig áfram á harmónikku eldri bróður
síns. Fermingarpeninga sína notaði Örvar til að kaupa sér splunkunýja
harmónikku og svo fór að hann spilaði á sínum fyrsta dansleik á Höfn á
fermingardaginn sinn. Upp úr því fór hann að leika á sveitaböllum.
Örvar varð fljótt vinsæll harmónikkuleikari. Hann gaf út þrettán hljómplötur á tónlistarferli sínum sem spann rúm sextíu ár. Örvar spilaði ekki eingöngu á harmónikkuna, heldur söng hann jafnframt og samdi eigin lög. Plöturnar hans seldust vel og lögin urðu vinsæl. Má þar að nefna lög eins og Siglt í norður, Síðasti dans, Komdu inn í kofann minn, Fram í heiðanna ró, Hlín Rósalín og Húmar að kveldi. Allra vinsælasta lag Örvars að öðrum ólöstuðum var þó Sunnanvindur. Örvar lést 7. apríl 2014. Þessir tónleikar eru haldnir til að minnast Örvars og hans framlags til íslenskrar tónlistarsögu.