Tix.is

Salurinn

Um viðburðinn

Viðlag snýr aftur með glænýja tónleikaupplifun sem aldrei áður hefur sést á Íslandi.
Tónleikarnir eru innblásnir af Glee söngleikjaklúbbum Bandaríkjanna þar sem mikið er um stór söngnúmer og sprúðlandi leikgleði.

Að þessu sinni syngur Viðlag inn jólin með þekktum lögum úr teiknimyndum sem eru sett í glænýjan jólabúning með íslenskum og sprenghlægilegum textum. Í stað þess að syngja um Bruno í Encanto syngur hópurinn um hvernig væri að halda jólin á Tenerife í ár. Par syngur dúett þar sem metist er um hver kaupir flottari jólagjöf. Malt og appelsín játa ást sína á hvort öðru á meðan aðrir dásama dálæti sitt á jólakvikmyndum. Tekin verða lög úr t.d. Fríðu og dýrinu, Frost, Aladdín, Mary Poppins og Moana.

Viðlag hefur slegið í gegn með söngleikjatónleikum fyrir fullu húsi í Gaflaraleikhúsinu, Þjóðleikhúskjallaranum og í Tjarnarbíó undanfarin ár með sýningum fullum af húmor og gleði. Meðlimir Viðlags eru allir lærðir leikarar, söngvarar eða hafa áralanga reynslu af söng.

Upplifðu öðruvísi, skemmtileg og falleg jól með Viðlagi í Salnum.

Kórstjóri: Axel Ingi Árnason

Listrænir stjórnendur: Agnes Wild, Bjarni Snæbjörnsson og Urður Bergsdóttir