Hallveig Rúnarsdóttir er svo sannarlega búin að syngja sig inn í sál þjóðarinnar undanfarin ár með sinni fögru sópranrödd og innlifun á sviði. Hallveig og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari hafa glatt marga áhorfendur hérlendis og erlendis með tónleikum sínum með faglegum flutningi og vönduðum efnisskrám. Á þessum tónleikum takast þær á við hin frægu Wesendonck ljóð Wagners. Á efnisskránni eru einnig kabarettlög eftir bandaríska tónskáldið William Bolcom og lög úr Brettl-Lieder (Kabarett söngvar) eftir austurríska tónskáldið Arnold Schönberg, sem geisla öll af kímni í frásögn og einfaldleika í tónlistinni.
Flytjendur:
Hallveig
Rúnarsdóttir, sópran
Hrönn
Þráinsdóttir, píanó
Syngjandi í Salnum er ný tónleikaröð sem hóf göngu sína í Salnum í Kópavogi í febrúar 2022. Listrænn stjórnandi hennar er Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir söngkona. Í röðinni er boðið upp á söngtónleika með nokkrum af fremstu klassísku söngvurum Íslands. Hverjir tónleikar verða nokkurs konar ,,portrett“ tónleikar, sem gefa mynd af listamanninum. Á blandaðri efnisskránni er undirstöðuefnið oft íslenskur og erlendur ljóðasöngur ásamt óperuaríum. Tónleikaröðin býður upp á sjö tónleika yfir tónleikaárið 2022-2023.
Mán | Þrið | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
---|---|---|---|---|---|---|
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |