Skip to content

Tix.is

RIFF

Um viðburðinn

Eftirhermuheilkenni

Anastasija Pirozenko - Litháen- 2016

Svipmyndir af holróma tónlistarmanni að syngja vestræn lög, mállausum blómasendli og fólki á jóganámskeiði.
____________________________________________________

Við sundlaugina

Laurynas Bareisa - Litháen - 2017

Eitthvað hræðilegt gerist í unglingateiti. Myndin sýnir hvernig viðbrögð hóps geta kæffært harmleik einstaklings.
____________________________________________________

Sjö klaufalegar kynlífssenur, fyrsti hluti

Liene Linde - Lettland - 2016

Ungur leikstjóri situr fyrir framan nefnd sem krefst svara við því hvers vegna hún hafi kosið að gera kvikmynd um eigin ástarsambönd og kynlíf.

_____________________________________________________

Minnist þess að þér eruð leir

Elvina Nevardauskaite & David Heinemann - Litháen, Bretland - 2017

Í elstu verksmiðju Litháen er andrúmsloftið þrungið dulúð sem fær áhorfandann til að skynja eigin dauðleika.
____________________________________________________

Þrír ágústdagar

Madli Lääne - Eistland - 2017

Í miðju umrótinu við lok kalda stríðsins sameinast eistnesk stúlka og rússneskur drengur yfir gosflösku frá Vesturheimi. Mynd um óvænta vináttu sem skoðar heiminn með augum barns.
_____________________________________________________

Manivald

Chintis Lundgren - Eistland - 2017

Manivald,atvinnulaus 33 ára refur, lifir dauflegu lífi með móður sinni. En þegar úlfurinn Toomas birtist til að laga þvottavélina breytist allt.
____________________________________________________

Bláberjavín

Astra Zoldnere - Lettland - 2016

Á sumrin lifir rómafjölskylda af berjatínslu og styttir sér stundir með draugasögum.