Hátíðarpassar gefa handhafa aðgang að öllum sýningum, utan sérviðburða, á RIFF 2018.
Hátíðin í ár verður sú fimmtánda í röðinni og mun hún standa yfir frá 27. september – 7. október 2018. Fylgist með dagskránni á www.riff.is
Passar sem keyptir hafa verið rafrænt má sækja:
Handhafar hátiðarpassa geta sótt miða á stakar sýningar í Bíó Paradís frá kl. 16:00 daginn fyrir sýningu og tekið út 4 miða í einu. Ef þér snýst hugur geturðu skipt miðunum út í miðasölunni. Passinn gildir á eina sýningu á hverri mynd og gildir ekki á sérviðburði. Þú þarft að sýna passa, skilríki og miða þegar þú ferð inn í bíósalinn.
Hvar hægt er að kaupa passa utan internetsins:
* Nemar, eldri borgarar og öryrkjar fá passann á afsláttarkjörum 13.900 kr. Afgreiddir í miðasölu okkar á Hlemmi Square eða í Bíó Paradís. Vinsamlegast framvísið skírteinum.
Ef þið hafið einhverjar spurningar má senda okkur línu á midasala@riff.is