Stórsveit Reykjavíkur í samstarfi við Hörpu og Sveiflustöðina leiðir börn og fjölskyldur í sveifluballi á Menningarnótt, laugardaginn 23. ágúst í Hörpu. Á ballinu tekur Stórsveitin gesti með sér í dillandi tónlistarferðalag og dansarar halda örnámskeið í einföldum danssporum sem allir geta lært!
Eiríkur Rafn Stefánsson stjórnar sveitinni og Bragi Árnason, leikari og dansari leiðir danskennsluna. Dansleikurinn hefst klukkan 15:20 í Silfurbergi sem er á 2. hæð í Hörpu.
Dansgólfið er opið - sveiflum okkur saman, stór og smá!