Karlakórinn Fóstbræður syngur fjölbreytt lög fyrir gesti og gangandi á tónleikum í Norðurljósum í Hörpu á Menningarnótt. Stjórnandi kórsins er Árni Harðarson. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
Karlakórinn Fóstbræður hefur starfað samfellt frá haustinu 1916 og eru í dag um 70 söngmenn í kórnum. Kórinn heldur reglulega tónleika og kemur fram á hinum ýmsu viðburðum og ber þar hæst árlegir vortónleikar sem fram fara í Norðurljósum í Hörpu ár hvert.