Skip to content

Tix.is

Óperan

  • 23. ágúst 2025 kl. 13:00

Ókeypis

Um viðburðinn

„Er þetta hvalur sem svamlar hjá eða marglytta? Eða er þetta kannski hafmeyja?“

Í skuggaleikhússmiðju ÞYKJÓ skapa fjölskyldur skuggabrúður innblásnar af dýrum sem synda í sjónum umhverfis Hörpu. Fjölskyldur koma ímyndunaraflinu á flug og kynnast töfrum skuggaleikhúss.

Smiðjan sem fer fram í Norðurbryggju og Rímu á 1. hæð er ætluð börnum frá 4 ára aldri í fylgd fullorðinna. Allur efniviður verður á staðnum og þátttaka er ókeypis.

ÞYKJÓ er þverfaglegt teymi hönnuða sem vinna fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sviði upplifunarhönnunar, innsetninga og vöruhönnunar. Hönnunarstarf þeirra miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í samstarfi við mennta- og menningarstofnanir.

ÞYKJÓ hlaut Hönnunarverðlauna Íslands árið 2024 fyrir verkefnið Börnin að borðinu. Hópurinn hlaut tilnefningu til sömu verðlauna í tvígang, árið 2021 og 2022 auk tilnefningar til alþjóðlegu YAM verðlaunanna.  Á meðal annarra nýlegra verkefna eru Hljóðhimnar í Hörpu, húsgagnalínurnar Kyrrðarrými og Hreiður og þátttökuverkefnið Gullplatan: Sendum tónlist út í geim!