Skip to content

Tix.is

Óperan

  • 24. júní 2025 kl. 20:00
  • 25. júní 2025 kl. 20:00

Miðaverð:4.900 kr.

Um viðburðinn

Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar
Nico Moreaux, bassi

Andrés Þór gítarleikari og Nico Moreaux bassaleikari stíga á svið með náið og notalegt tónlistarferðalag þar sem eigin tónverk þeirra félaga mæta vel völdum standördum. Tónlistin einkennist af akústískum og lágstemmdum en þó fjölbreyttum hljóðheimi þar sem nælonstrengjagítar, þjóðlagagítar og hollow body gítarar Andrésar blandast jarðtengdum og lífrænum hljómi kontrabassa Nico. Saman skapa þeir félagar hljóðheim sem er bæði ljóðrænn og íhugull þar sem samspil, hljómur og andrými fá að njóta sín. Þeir Andrés og Nico hafa unnið saman í mörg ár í fjölbreyttum verkefnum, svo sem tríói Andrésar, Poney Moon hljómsveit Nico og í Multiverse kvartett trommuleikarans Scott McLemore. Þeir deila sameiginlegri ástríðu fyrir djasstónlist með áhrifum frá þjóðlagatónlist, Americana og ýmsum impressjónistískum stílum. Ekki missa af kvöldi þar sem næmni, spuni og lágstemmdur hljómur þessara tveggja hljóðfæraleikara mynda einstaka tónlistarupplifun.