Youth Chamber Orchestra (YCO) heldur tónleika í Hörpuhorni fimmtudaginn 19. júní kl. 14. Leikin verða verk eftir Händel, Tchaikovsky, Piazzolla, Schubert og Piazzolla. Stjórnandi YCO er Aaron Picht.
Kl. 15:15 verða píanótónleikar nemenda í YCO og Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar. Fram koma nemendur sem eru í hópi þeirra bestu á
Norðurlöndum og hafa unnið til verðlauna fyrir píanóleik.
Ókeypis er á tónleikana og öll hjartanlega velkomin.
Nánar um YCO:
YCO, Youth Chamber Orchestra, er skipuð tuttugu úrvals nemendum á aldrinum 13-18 ára, úr tónlistarprógramminu Music Prep‘s Center for Gifted Young Musicians sem stofnað var 1986. Í prógramminu eru starfandi þrjár strengjasveitir og minni kammerhópar sem njóta leiðsagnar meðlima í The Philadelphia Orchestra og leiðandi tónlistarmanna í Fíladelfíu. Margir fyrrverandi nemendur í Music Prep starfa við tónlist í dag m.a. í The Philadelphia Orchestra. Aaron Picht hefur verið stjórnandi sveitarinnar frá 2013.
YCO hefur verið í samstarfi við Tónskóla Sigursveins síðan 2013 og heimsækir nú Ísland í fimmta sinn. YCO hefur haldið tónleika víða á Íslandi, í Hörpu, Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum, Seltjarnarneskirkju, Lava Center og Eldheimum. YCO hefur einnig leikið fyrir forseta Íslands á Bessastöðum.
Mán | Þrið | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
---|---|---|---|---|---|---|
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |