Tónleikarnir fara framí Hörpuhorni, á annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
--
Sigríður Hjördís Önnudóttir hóf tónlistarnám árið 2002 á Akranesi en þaðan lá leið hennar í Tónlistarskóla Reykjavíkur þar sem hún naut handleiðslu Hallfríðar Ólafsdóttur. Sigríður var einn af sigurvegurum einleikarakeppni Tónlistarskólans í Reykjavík árið 2013 og lék í kjölfarið einleik á tónleikum með Strengjasveit Tónlistarskólans.
Árið 2014-2015 stundaði Sigríður nám við Konunglega listaháskólann í Antwerpen undir handleiðslu Aldo Baertens. Frá 2015 stundaði hún nám við Listaháskóla Íslands en hún var einn einleikara sem spiluðu einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikunum „Ungir einleikarar“ árið 2015. Hún útskrifaðist frá LHÍ með bakkalárgráðu árið 2017 og stundaði síðar nám hjá Lornu McGhee við Carnegie Mellon University í Pittsburgh en þaðan lauk hún meistaragráðu árið 2024.
Sigríður Hjördís er búsett á Íslandi og starfar sem flautukennari og afleysingamanneskja í Sinfóníuhljómsveit Íslands.