Tix.is

Norræna Húsið

Um viðburðinn

Sviðslistahópurinn Bíbí & Blaka kynnir verkið SPOR, gagnvirka danssýningu fyrir börn á aldrinum 4 – 7 ára.


Lengd sýningar:
u.þ.b 40 mínútur
Fjölda þátttakenda: 30
Miðaverð:2.900kr 
Sýningar: 31. mars, 6. og 7. apríl kl.13 og kl.15

SPOR  er könnunarleiðangur þar sem leitað er að galdrinum sem felst i orkunni – kraftinum sem býr i öllu. Áhorfendum er boðið í heim þar sem orkan er allstaðar sjáanleg, heyranleg og snertanleg. Orkan í hafinu, á jörðinni, í geimnum og líka orkan í okkur sjálfum. Börnin munu fylgja dansandi óbeisluðum orkugjöfum auk þess að kanna undarlegt umhverfið á eigin vegum. Hvaða orka er það sem kviknar í myrkrinu? Erum við orkusugur, eða gefum við jafn mikið og við þiggjum?

Hægt verður að skoða innsetninguna SPOR utan sýningartíma.

SPOR er unnið í samstarfi við listamenn frá Noregi, Finnlandi, Grænlandi og Færeyjum og mun ferðast og þróast áfram í Grænlandi og Færeyjum. Verkið er unnið í samstarfi við Norræna Húsið, NAPA og styrkt af Mennta- og menningarmálarráðuneytinu – Leiklistarráði, Listamannalaunum, Nordic Culture Fund og Reykjavíkurborg.

Höfundar: Bíbí & Blaka
Dans: Tinna Grétarsdóttir
Innsetning, leikmunir og búningar: Guðný Hrund Sigurðardóttir
Tónlist og hljóðmynd: Sólrún Sumarliðadóttir
Dansarar: Valgerður Rúnarsdóttir & Snædís Lilja Ingadóttir
Ljósahönnun: Magnús Arnar Sigurðarson & Mari Agge

Bíbí & Blaka  er hópur listamanna sem að vinnur að sviðslistaverkum fyrir ung börn og aðstandendur þeirra. Hópurinn samanstendur af Tinnu Grétarsdóttur danshöfundi, Sólrúnu Sumarliðadóttur tónskáldi og Guðnýju Hrund Sigurðardóttur sviðshönnuði auk þeirra flytjenda sem að eru í verkunum hverju sinni. Sýningar hópins eru nú fjórar; Fjaðrafok, Vera og vatnið, Fetta Bretta og Skýjaborg. Auk þess var tónlist Sólrúnar úr verkunum Skýjaborg og Fetta Bretta gefin út af Smekkleysu undir nafninu Skýjaflétta. Bíbí & Blaka hefur ferðast víða bæði innanlands sem erlendis og sýnt verkin sín um 200 sinnum.

Verkefnið er styrkt af