Tix.is

Norræna Húsið

Um viðburðinn

Finnska listakonan Nina Backman í samvinnu við Norræna húsið stendur fyrir gjörningi með þátttöku almennings, í gróðurhúsi Norræna hússins 28. nóvember kl. 19:00-21:00. 

Gjörningurinn kallast The Silence meal (þögla máltíðin) og er þátttöku gjörningur þar sem þátttakendur snæða þriggja rétta máltíð með víni í þögn. Markmið listakonunnar er að gefa fólki tækifæri til að skynja umhverfi sitt með sjálfum sér og skoða hvað kemur í staðinn fyrir talað mál. Með því að fjarlægja innihaldsefni orða fáum við aukið frelsi til að skynja betur umhverfi okkar og við verðum líkamlega, tilfinningalega og  andlega tengdari náttúrunni og umhverfinu. 

Máltíðin er skrásett með ljósmyndavél ásamt því sem búkhljóð, írskur í hnífapörum og annað smjatt verður tekið upp á hljóðupptökutæki.

Praktískar upplýsingar

Dagsetning: 28. nóvember kl. 19-21. 

Verð: 15.500 kr. Þriggja rétta máltíð með þremur vínglösum og kaffi. Matur frá AALTO Bistro. 

Staðsetning: Gróðurhús Norræna hússins (upphitað). Mæting í móttöku Norræna hússins. 

Fjöldi: aðeins 20 manns komast að hverju sinni

www.nordichouse.is