Tix.is

Norræna Húsið

Um viðburðinn

Norræna húsið 9. ágúst kl. 20:00

Hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans var stofnuð árið 2010 og leikur blöndu af tónlist frá Balkanskaganum. Sú tónlist er annáluð fyrir flókna takta, dulúð og tilfinningarhita. Hljómsveitin hefur gefið út tvo geisladiska og einn DVD og hefur hvor tveggja hlotið einróma lof gagnrýnenda og diskurinn Night without moon tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2014. Meðlimir Skuggamynda eru þeir Haukur Gröndal, klarinett, Ásgeir Ásgeirsson, tamboura, bouzouki og saz baglama, Erik Qvick, slagverk og Þorgrímur Jónsson, bassi.

www.facebook.com

Verið velkomin á Tónleikaröð Norræna hússins alla miðvikudaga í sumar frá 14. Júní til 30. ágúst. Tónleikaröðin inniheldur rjómann af íslenskum djassi og íslenskri þjóðlagatónlist, með smá áhrifum frá latínu- og balkantónlist, sem og góðum gesti frá Svíþjóð. Tónleikaserían einkennist af afbragðs tónlistarmönnum og spannar allt frá hinu melankólíska og lágstemmda yfir í hið ástríðufulla og stormasama.

Tónleikarnir fara fram í Aðalsal Norræna hússins og miðaverð er 2000 kr.

Sumartilboð: Inniheldur skoðunarferð, tveggja rétta máltíð á veitingastaðnum AALTO Bistro og tónleikamiða! 

Nánar um sumartilboðið hér