Tix.is

Norræna Húsið

Um viðburðinn
Renewal er nýr íslenskur diskur með tónlist eftir píanóleikarann Baldvin Snæ Hlynsson og útgáfutónleikarnir verða haldnir í Norræna húsinu sem hluti af tónleikaröðinni. Tónlistin er melódískur og lífrænn djass. Með Baldvini eru afbragðs tónlistarmenn eins og Ari Bragi Kárason sem leikur á flugelhorn, Einar Scheving á trommur, Valdi Kolli á kontrabassa og Bjarni Már á rafgítar. 

https://soundcloud.com/baldvinsnaer 

Verið velkomin á Tónleikaröð Norræna hússins alla miðvikudaga í sumar frá 14. Júní til 30. ágúst. Tónleikaröðin inniheldur rjómann af íslenskum djassi og íslenskri þjóðlagatónlist, með smá áhrifum frá latínu- og balkantónlist, sem og góðum gesti frá Svíþjóð. Tónleikaserían einkennist af afbragðs tónlistarmönnum og spannar allt frá hinu melankólíska og lágstemmda yfir í hið ástríðufulla og stórmasama.

Tónleikarnir fara fram í Aðalsal Norræna hússins.

Dagskrá

14. júní Ragnheiður Gröndal
21. júní Umbra
28. júní Baldvin Snær Hlynsson
5. júlí Krilja
12 júlí Snorri Helgason
19 júlí Tómas R. tríó
26 júlí Stína Ágústsdóttir
2. águst Ragnheiður Gröndal
9. águst Skuggamyndir frá Býsans
16. águst Tómas R. kvartett
23. águst Umbra
30. águst Þorgrímur Jónsson