VÆB fjölskyldutónleikar á Akureyri VÆB halda sína fyrstu tónleika á Akureyri og bjóða allri fjölskyldunni á skemmtun sem er engri lík.
Eftir að hafa unnið Söngvakeppnina 2025 með laginu sínu RÓA hefur VÆB æðið aldrei verið stærra. Landsmenn hafa verið að bíða eftir tónleikum á Akureyri og VÆB bræðurnir róa eins og enginn sé morgundagurinn norður og svara kallinu!
Ekki láta þig vanta í geggjað fjör og upplifun fyrir alla aldurshópa á Akureyri í Hofi