Skip to content

Tix.is

Menningarfélag Akureyrar

  • 5. september 2025 kl. 20:00

Miðaverð:3.000 kr.

Um viðburðinn

Big Band Eyþórs býður upp á glæsilega fönk tónleika með 11 manna hljómsveit. Bæði verður flutt frumsamið efni og lög sem allir ættu að þekkja í stærri útsetningum en áður hefur sést. 

Hljómsveitin spratt upp úr sameiginlegri ástríðu fyrir fönk tónlist og samanstendur af ungu og efnilegu tónlistarfólki. Hljómsveitin sló nýlega í gegn á Músíktilraunum 2025 þar sem hún lenti í þriðja sæti. 

Big Band Eyþórs skipa:
Eyþór Alexander Hallsson – Hljómborð
Heimir Steinn Vigfússon – Söngur
Gunnar Hrafn Kristjánsson – Söngur
Þorsteinn Jónsson – Trommur
Jóhann Þór Bergþórsson – Bassi
Guðmundur Þórarinsson - Trompet
Eberg Óttarr Elefsen - Trompet
Kjartan Hugi Rúnarsson – Altó saxófónn
Ýmir Haukur Guðjónsson – Tenór saxófónn
Þórhallur Forni Halldórsson – Barritón saxófónn
Hildur Arna Hrafnsdóttir - Þverflauta