Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heiðrar Jón Nordal.
Tónskáldið Jón Nordal fæddist þann 6. mars 1926 og því verða 100 ár
liðin frá fæðingu hans í mars 2026. Af því tilefni mun Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands flytja tvær af perlum Jóns, Óttusöngvar að vori fyrir tvo
einsöngvara, kór og sinfóníuhljómsveit og Konsert fyrir selló og
hljómsveit. Einnig verður frumflutt verk eftir Daníel Þorsteinsson sem
útnefndur var bæjarlistamaður á Akureyri árið 2000.
Jón Nordal er eitt merkasta og eftirtektaverðasta tónskáld íslandssögunnar og
vakti ungur athygli. Hann var t.a.m. aðeins 19 ára þegar fiðluverkið „Systurnar
í Garðshorni“ var flutt á listamannaþinginu 1945.
Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands: Bjarni Frímann Bjarnason
Einsöngvari: Harpa Ósk Björnsdóttir
Einleikari á selló: Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir.
Ásamt: Hljómeyki og Kór Akureyrarkirkju.