Um viðburðinn
Komdu og taktu þátt í
einstökum tónlistarviðburði þar sem við fögnum ferli og arfleifð Magnúsar
Eiríkssonar, eins ástsælasta texta, lagahöfundar landsins.
Framúrskarandi listamenn
munu flytja lög Magnúsar með glæsibrag.
Magnús Eiríksson, fæddur
25. ágúst 1945 í Reykjavík, tónlistarmaður, lagahöfundur og textasmiður sem
hefur haft mikil áhrif á íslenska tónlistarsögu. Hann er hvað þekktastur fyrir sínar
einstöku texta og lagasmíðar sem hafa fundið sér sess í Íslenskri þjóðarsál og
eru orðin partur af Íslenskri arfleið.
- Á sjöunda áratugnum lék Magnús með hljómsveitum eins
og Pónik og Blúskompaníinu. Hann vakti fyrst athygli sem lagahöfundur með
Pónik, þar sem lög hans voru tekin upp í London árið 1966.
- Árið 1976 kom út fyrsta plata hljómsveitarinnar
Mannakorn, sem innihélt lög eins og "Einbúinn" og "Kontóristinn".
Þessi plata sló í gegn og staðfesti stöðu Magnúsar sem einn fremsta
lagahöfundar landsins. Í kjölfarið kom út aragrúa laga sem mörg hver eru
orðin að klassík í íslenski dægurtónlist. Nægir þar að nefna lög eins og "Draumaprinsinn"
í Flutningi Ragnhildar Gísladóttur, "Einhver staðar einhvertíma
aftur" í flutningi Ellenar Kristjánsdóttur, "Óbyggðirnar
kalla“ í flutningi KK og Magga og síðast en ekki síst "Ég er á
leiðinni" með Brunaliðinu í flutningi Pálma Gunnarssonar.
- Magnús hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir
framlag sitt til tónlistar, þar á meðal heiðursverðlaun Íslensku
tónlistarverðlaunanna árið 1999.
- Árið 2024 var honum veitt fyrstur allra Þakkarorða
íslenskrar tónlistar fyrir ævistarf sitt.
Þetta eru ómissandi
tónleikar fyrir ómissandi fólk.