Galdrakarlinn í Oz- Leikfélag Menntaskólans á Akureyri Söngleikurinn Galdrakarlinn í Oz er byggður á barnabók L. Frank Baum sem kom út um aldamótin 1900. Leikgerðin er byggð á íslenskri þýðingu Bergs Þórs Ingólfssonar, á leikgerð eftir John Kane.
Fellibylur feykir húsi Dórótheu til framandi töfralands og hún, ásamt hundinum Tótó, vill komast aftur heim. Hún ákveður að leita hjálpar hjá Galdrakarlinum í Oz og á leiðinni til hans hittir hún heilalausu Fuglahræðuna, hjartalausa Tinkarlinn og huglausa Ljónið. Það eru því fleiri sem þurfa á hjálp að halda og saman halda vinirnir í mikla ævintýraferð. Sýningin er fyndin og hjartnæm og sannkölluð veisla fyrir allan aldur. Með glæsilegum söng og dans, litríkum búningum og dáleiðandi leikmynd eru leikhúsgestir dregnir inn í töfrandi heim Oz. Hæfileikar og metnaður unga fólksins glæða söguna lífi.
Leikfélag Menntaskólans
á Akureyri hefur verið þekkt fyrir metnaðarfullar leiksýningar í fjölda ára en
í ár koma hátt í 90 nemendur Menntaskólans á Akureyri að verkinu, hvort sem það
er með leik, dansi eða tónlist, markaðssetningu, búninga -og leikmyndahönnun
eða hárgreiðslu og förðun. Dóróthea uppgötvar töfra Oz á ný í Hofi 2025, í
leikstjórn Egils Andrasonar.
Mán | Þrið | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
---|---|---|---|---|---|---|
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |