Skip to content

Tix.is

Menningarfélag Akureyrar

Um viðburðinn

Menningarfélag Akureyrar (MAk) hefur sett saman metnaðarfulla menningardagskrá fyrir sumarið. Gert er ráð fyrir uppákomum nær alla daga í sumar og fara þær fram í Menningarhúsinu Hofi klukkan 14 og 20 á daginn. Dagskráin ber yfirskriftina Menningarsumarið í Hofi eða Summer Events in Hof og er í senn ætluð heimamönnum sem erlendu og innlendu ferðafólki.

Á þessum tónleikum mun Eyþór Ingi Gunnlaugsson syngja íslenskar og erlendar rokkperlur.

Tónleikarnir fara fram í Hömrum tónleikasal í Hofi og 1862 Nordic Bistro verður með opið bæði í mat og drykk á meðan á tónleikum stendur.