Skip to content

Tix.is

Menningarfélag Akureyrar

Um viðburðinn

Upprunalega þríeykið sem stofnaði Todmobile árið 1988, þau Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson gítarleikari, Andrea Gylfadóttir söngkona og Eyþór Arnalds söngvari og sellóleikari koma saman á ný. Einnig koma fram aðrir núverandi kjarna meðlimir Todmobile, þeir Eyþór Ingi Gunnlaugsson söngvari, Kjartan Valdemarsson hljómborðsleikari, trommuleikarinn Ólafur Hólm og Eiður Arnarsson bassaleikari. Saman stíga þau á stokk í Hofi laugardagskvöldið 20. nóvember 2021 og flytja vel valda smelli frá öllum ferli sveitarinnar en þetta verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem Eyþór Arnalds kemur fram með Todmobile.

 

Á seinni árum hefur hljómsveitin opnað leikvöll fyrir erlendar rokkstjörnur sem höfðu áhrif á meðlimi hennar í æsku. í þeirri tónleikaröð höfum við fengið að heyra og sjá Jon Anderson úr YES, Steve Hackett úr Genesis, Nik Kershaw og Live Aid og Ultravox stjörnuna Midge Ure ganga inn í hljóðheim Todmobile og SinfoniaNord.

 

En núna er þetta back to basics. Sameinuð stöndum við!