Skip to content

Tix.is

Menningarfélag Akureyrar

Um viðburðinn

Unglingastig Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar frumflytur tvö ný íslensk verk í HOFI á Barnamenningarhátíð 29. apríl í samstarfi við Þjóðleik. Það eru verkin Höfðingjabaráttan eftir unga Akureyringinn Egil Andrason og Ég er frábær eftir Álfrúnu Örnólfsdóttur. Verkin sem eru samin sérstaklega fyrir Þjóðleik 2020 hafa verið stytt og aðlöguð fyrir hópana sem flytja þau.

Höfðingjabaráttan gerist á steinöld og fjallar um Ylla sem á að taka við höfðingjaembætti föður síns en hann langar hins vegar frekar til að verða listamaður. Í verkinu er verið að skoða staðalímyndir og fordóma á grátbroslegan hátt. Það eru Alma, Bergdís, Birta Líf, Jórunn Halla, Stefán Andri og Svanhvít Sara sem leika. Kennari/leikstjóri er Pétur Guðjónsson

Ég er frábær segir frá Perlu dóttur Loga nokkurs, en hann heldur úti samnefndu sjálfstyrkingarnámskeiði þar sem ekki er allt með felldu og Perla gerir uppreisn gegn föður sínum. Það eru Amanda Eir, Ásbjörn Garðar, Dagrún Inga, Emma Ósk, Guðmar Gísli, Lilja, Pétur Friðrik, Svavar Máni og Þórhallur sem leika. Kennari/leikstjóri er Pétur Guðjónsson.