Tónleikarnir hafa verið færðir vegna hertra samkomutakmarkana.
Þann 3. apríl mun
hljómsveitin Hvanndalsbræður fagna útgáfu áttundu breiðskífu sinnar sem ber
heitið "Hraundrangi" Plötunni hefur verið afar vel tekið af
gagnrýnendum og nú á að fagna með því að spila plötuna í heild sinni í fyrsta
sinn á sviði, segja frá lögunum, ásamt því að spila nokkur af vinsælli lögum
sveitarinnar í bland.
Tónleikarnir verða haldnir í Black Box-inu í
menningarhúsinu Hofi sem er í raun sviðið í stóra salnum Hamraborg. Þar verður
útbúin glæsilegur tónleikasalur. Sóttvarnir og fjarlægðartakmörk verða í
hávegum höfð og því afar takmarkað magn miða á þessa tónleika. Gestum
tónleikana gefst kostur á að kaupa glæsilega vinyl útgáfu af plötunni sem kemur
út í takmörkuðu upplagi. Platan Hraundrangi er nú þegar komin út á Spotify og
mælum við með að fólk hlusti vel áður en komið er á tónleikana.
Hvanndalsbræður lofa góðri skemmtun!