Skip to content

Tix.is

Menningarfélag Akureyrar

Um viðburðinn

EFNISSKRÁ Franz Josep Haydn Sinfónía nr. 96 í D-dúr (Kraftaverkið) Golfam Khayam I am not a tale to be told Gustav Mahler Sinfónía nr. 4 í G-dúr, Himnasælusinfónían HLJÓMSVEITARSTJÓRI Barbara Hannigan EINSÖNGVARI Barbara Hannigan Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kanadíska sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn Barbara Hannigan eru væntanleg til Akureyrar og halda tónleika í Hofi föstudaginn 16. júní. Aðeins er ár síðan Barbara kom fyrst til landsins og sló eftirminnilega í gegn með hljómsveitinni í Hörpu á Listahátíð í Reykjavík vorið 2022. Gagnrýnandi Fréttablaðsins sagði meðal annars um þá tónleika: „Túlkunin var draumkennd og skáldleg, það ver einhver upphafin stemning yfir öllu saman,“ og „útkoman var sjaldheyrður unaður“. Barbara Hannigan hefur vakið feikilega aðdáun um heim allan undanfarin ár, fyrir stórfenglegan söng en ekki síður fyrir hæfileika sína sem hljómsveitarstjóri. Hún hefur starfað með öllum helstu hljómsveitum heims og hefur frumflutt yfir 85 ný tónverk, meðal annars eftir György Ligeti og Hans Abrahamsen. Þá hefur hún sungið í helstu óperuhúsum heims, meðal annars hið krefjandi titilhlutverk í Lulu eftir Alban Berg. Barbara Hannigan hefur hlotið ótal verðlaun fyrir list sína, meðal annars Grammy-verðlaun fyrir plötuna Crazy Girl Crazy árið 2018 og hin virtu Léonie Sonning-verðlaun árið 2020. Þegar Rolf Schock-verðlaunin féllu henni í skaut rökstuddi dómnefndin ákvörðun sína með þeim orðum að Hannigan væri „einstakur og framsækinn flytjandi sem nálgast tónlistina sem hún flytur með öflugum og lifandi hætti“. Á efnisskrá tónleikanna í júní verða þrjú hrífandi tónverk þar sem ljóðræna og leikgleði Barböru Hannigan fá að njóta sín jafnt í söng og hljómsveitarstjórn. Tvö verkanna teljast til öndvegisverka tónbókmenntanna, það eru hin svonefnda Kraftaverkasinfónía Josephs Haydn nr. 96 og fjórða sinfónía Gustavs Mahler, hin svokallaða Himnasælusinfónía, þar sem Barbara fer með sópranhlutverkið auk þess að stjórna hljómsveitinni. Á undan sinfóníu Mahlers hljómar nýtt og spennandi verk íranska tónskáldsins Golfam Khayam, en hún nýtur mikillar velgengni fyrir tónsmíðar sínar. Leiðir þeirra Barböru Hannigan lágu saman eftir þátttöku Hannigan í samstöðutónleikum með konum í Íran og er þessi stutta og spunakennda tónhugleiðing samin með hana í huga. Sinfónía Haydns er ein af hinum snilldarlegu Lundúnasinfóníum hans þar sem kímnigáfa hans og fullkomið vald á forminu njóta sín til fulls. Himnasælusinfónía Mahlers er sömuleiðis í sérflokki meðal höfundarverka hans – klassísk í formi og aðgengileg en full af barnslegri einlægni, ást á náttúrunni og tilfinningu fyrir hinu yfirskilvitlega.

Tónleikakynning á vegum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Tónlistarfélags Akureyrar fer fram í Hamragili kl. 18. Þar mun Michael Jón Clarke gefa tónleikagestum innsýn í efnisskrá kvöldsins. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.



Maí
Janúar
Febrúar
Mars
Apríl
Maí
Júní
Júlí
Ágúst
September
Október
Nóvember
Desember
2025
1950
1951
1952
1953
1954
1955
1956
1957
1958
1959
1960
1961
1962
1963
1964
1965
1966
1967
1968
1969
1970
1971
1972
1973
1974
1975
1976
1977
1978
1979
1980
1981
1982
1983
1984
1985
1986
1987
1988
1989
1990
1991
1992
1993
1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
2011
2012
2013
2014
2015
2016
2017
2018
2019
2020
2021
2022
2023
2024
2025
2026
2027
2028
2029
2030
2031
2032
2033
2034
2035
2036
2037
2038
2039
2040
2041
2042
2043
2044
2045
2046
2047
2048
2049
2050
MánÞriðMiðFimFösLauSun
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
0:00
1:00
2:00
3:00
4:00
5:00
6:00
7:00
8:00
9:00
10:00
11:00
12:00
13:00
14:00
15:00
16:00
17:00
18:00
19:00
20:00
21:00
22:00
23:00