ALMENNIR SKILMÁLAR
- Vinsamlegast farið vel yfir miðakaupin þegar þau eiga sér stað, er þetta rétt dagsetning, rétt svæði, rétt tímasetning o.s.frv. Ekki er hægt að ábyrgjast að hægt sé að breyta miðakaupunum eftir á.
- Allir viðburðir sem í sölu eru hjá Tix Miðasölu eru á ábyrgð aðstandenda viðburðar, ekki Tix Miðasölu.
- Ekki er heimilt að áframselja miða með fjárhagslegum hagnaði. Ef miði er seldur með fjárhagslegum hagnaði fyrir annan aðila en aðstandenda viðburðar, þá áskilur Tix Miðasala sér rétt f.h. aðstandenda viðburðar til að ógilda miðann með öllu.
- Ef viðburður fellur niður, þá er eigendum miða boðnir sambærilegir miðar á næstu dagsetningu viðburðar eða full endurgreiðsla á miða.
- Ef dag- eða tímasetningu viðburðar er breytt, þá færast miðarnir sjálfkrafa á nýja dag/tímasetningu. Ef ný dag/tímasetning hentar ekki á kaupandi rétt á endurgreiðslu, en Tix Miðasala getur f.h. aðstandenda viðburðar í tilkynningu um breytingu sett ákveðin tímamörk sem viðskiptavinir hafa til að falla frá kaupunum.
- Þegar þú hefur keypt miða eða gjafakort hjá Tix Miðasölu, í gegnum vefinn eða síma, hefur þú 14 daga frá kaupum til þess að falla frá þeim og óska eftir endurgreiðslu á kaupunum hjá Tix Miðasölu. Þetta á hins vegar ekki við ef minna en 14 dagar eru í viðburð.
- Viljir þú falla frá kaupum á miða eða gjafakorti, innan 14 daga frá kaupunum skaltu senda tilkynningu í pósti á info@tix.is með nafni, netfangi, síma og upplýsingum um miðakaup. Þegar skilyrði til endurgreiðslu eru uppfyllt þá eru miðakaupin endurgreidd innan 14 daga, með sama greiðslumiðli og notaður var við upphaflegu kaupin.
- Eftir að miði hefur verið sendur í pósti til eigenda þá er póstburðargjald í engum tilfellum endurgreitt.
- Aldurstakmark á viðburði ræðst eftir útivistartíma barnaverndarlaga og lögum um vínveitingahús. Börnum yngri en 18 ára er óheimilt að dvelja inni á veitingastað, sem leyfi hefur til áfengisveitinga eftir kl. 20.00 á kvöldin og fram til lokunar staðarins, nema í fylgd með forsjáraðila. Viðburðarhaldari sett frekari reglur varðandi aldurstakmörk og gilda þær þá fram yfir þær reglur sem settar eru í skilmálum Tix Miðasölu.
- Takmarkaður miðafjöldi. Á suma viðburði er miðafjöldi takmarkaður við miðakaup, ef fleiri miðar eru keyptir á saman nafn, kennitölu, netfang eða kreditkort, þá áskilur Tix Miðasala sér rétt til þess að ógilda alla miða sem keyptir eru umfram þann fjölda sem tiltekinn er.
- Með kaupum á miða hjá Tix Miðasölu, samþykkir þú að fá sendan tölvupóst, svo sem upplýsingar um viðburðinn eða þjónustu tengda honum, frá þeim aðila er stendur að viðburðinum. Ef þú af einhverjum ástæðum vilt ekki samþykkja þetta, þá getur þú haft samband við skrifstofu Tix Miðasölu.
- Tix Miðasala meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög, persónuverndarstefna Tix er aðgengileg á forsíðu Tix.
- Forfallavernd. Miðahöfum stendur til boða að kaupa forfallavernd sem hluti af kaupum þeirra á suma viðburði á Tix.is. Skilmála söluaðila forfallaverndarinnar, JMM Ireland, má nálgast með því að smella hér. Með kaupum á forfallavernd samþykkir miðahafi skilmála söluaðila og mögulega afhendingu gagna vegna endurgreiðslubeiðnar. Forfallavernd er í engum tilfellum endurgreidd.
- Tix Miðasala og aðstandendur viðburða bera enga ábyrgð á persónulegum munum miðaeigenda fyrir, á meðan, eða eftir að viðburði lýkur.
- Aðgöngumiðar á hátíðir gefa ótakmarkaðan aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar nema annað komi fram á miða eða í miðakaupum. Aðgangur er þó alltaf háður fjöldatakmörkunum hvers viðburðar/viðburðastaðar fyrir sig.
- Veljir þú að nýta þér þann möguleika að fá miðann beint í símann þá samþykkir þú um leið að Tix sendi upplýsingar um miðann þinn til Nova til birtingar í Nova appinu. Nova meðhöndlar upplýsingar í samræmi við skilmála Nova og meðhöndlun persónuupplýsinga.
SKILMÁLAR FYRIR STREYMISVIÐBURÐI / PAY-PER-VIEW
- Þú átt rétt á endurgreiðslu ef þú keyptir óvart tvo miða eða fleiri vegna tæknierfiðleika, notaðir sama netfang í bæði skipti og hafðir sannarlega samband til að fá aðstoð áður en umfram miðarnir voru keyptir.
- Viðburðinum var aflýst, eða hann fór ekki fram af einhverjum ástæðum.
- Viðburðahaldari ber ekki ábyrgð á þeim tæknivandamálum sem geta komið upp hjá miðahafa og ábyrgist ekki að öll viðtæki, hugbúnaður og nettengingar geti nýst til þess að taka við streymi viðburðar.
- Þú sem kaupandi berð ábyrgð á því að sá búnaður (viðtæki, hugbúnaður, nettenging) sem þú hyggst nota til þess að horfa á streymisviðburð uppfylli kröfur til þess að geta tekið á móti streyminu. Gæði streymis getur verið mismunandi eftir þeim búnaði sem þú notar til þess að horfa á viðburðinn.
- Miði er ekki endurgreiddur vegna þess að streymi fellur niður í heild sinni eða að hluta nema sannað þyki að það sé vegna atvika sem viðburðahaldari ber ábyrgð á.
- Viðburðahaldari ber ekki ábyrgð á því að streymi falli niður að hluta eða í heild sinni vegna aðstæðna er varða þriðja aðila sem hann getur ekki með sanngjörnum hætti borið ábyrgð á, t.d. veitanda fjarskiptaþjónustu, eða vegna utanaðkomandi aðstæðna sem viðburðahaldari getur ekki borið ábyrgð á eins og t.d. veðurs, hryðjuverka, stríðs, farsótta o.þ.h.
- Viðburðahaldari endurgreiðir ekki miða út af persónulegum aðstæðum miðahafa sem koma í veg fyrir að hann geti horft á viðburðinn.
Skilmálar þessir gilda frá og með 17. maí 2023
Tix Miðasala ehf.
Hallgerðargata 13
105 Reykjavík
Kennitala: 630914-0190
Vsk. Nr. 118057
info@tix.is