Skip to content

Tix.is

Þjóðleikhúsið

  • 30. ágúst 2025 kl. 20:00
  • 6. september 2025 kl. 20:00
  • 19. september 2025 kl. 20:00

Miðaverð:0 - 7.950 kr.

Um viðburðinn

Þakið rifnar af húsinu!
Hjólhýsin rúlla aftur inn á Stóra sviðið!

Eldrauð hláturviðvörun!

„Smellin tilsvör, yfirgengileg uppátæki og einstaklingsframtak hins þrælvel skipaða leikhóps, sem öll kunna sitt grín upp á tíu. Þó það nú væri.“
Morgunblaðið

Sýning um þjóðaríþrótt okkar Íslendinga: Að elta veðrið!

Eltum veðrið hefur notið gífurlegra vinsælda og gengið fyrir fullu húsi á Stóra sviðinu í heilt leikár. Bráðfyndinn og óútreiknanlegur leikhópur Þjóðleikhússins skemmtir fullum sal gesta kvöld eftir kvöld, og þakið ætlar að rifna af húsinu!

TÓM VITLEYSA – BREKKUSÖNGUR – VINIR Í VANDA

Skrautlegur vinahópur heldur í sína árlegu útilegu, en nú er allt eitthvað svo öfugsnúið. Ekki líður á löngu þar til hin árlega samkoma vinahópsins tekur óvænta og stórvarasama stefnu. Bráðfyndið ny´tt verk, samið af mörgum fremstu gamanleikurum þjóðarinnar úr leikhópi Þjóðleikhússins, unnið upp úr missönnum sögum af útilegum á Íslandi þar sem allt fer í steik. Hér er unnið með list leikarans og samband hans við áhorfendur af hugmyndaauðgi, fjöri og hæfilegu kæruleysi, um leið og þjóðarsálin er skoðuð í spéspegli. Óborganlegar aðstæður sem við þekkjum öll – alltof vel.

Sannkölluð gleðisýning eftir drepfyndinn leikhóp Þjóðleikhússins

Leikarar: Eygló Hilmarsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Þröstur Leó Gunnarsson.

Höfundar, auk leikhóps: Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.

Leikstjórn: Kjartan Darri Kristjánsson og leikhópurinn

Tónlist: Sváfnir Sigurðarson
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir
Búningar: Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir
Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason
Myndbandshönnun: Ásta Jónína Arnardóttir og Kjartan Darri Kristjánsson