Tix.is

Þjóðleikhúsið

Um viðburðinn

Ukulellur - þú vissir ekki að þær vantaði í líf þitt!

Ukulellur eru hópur (miðaldra) lesbía sem semja eigin texta við þekkt lög og leika flestar undir á ukulele. Eiginlega allar nema þær sem spila á eitthvað annað, eins og slagverk, bassa eða svoleiðis. Ukulellur syngja um líf miðaldra kvenna og allt það sem sameinar þann hóp eins og fram kemur t.d. í lögunum um Breytingaskeiðið, Lesgleraugun og Liðskiptin. En þær syngja líka um það sem brennur sérstaklega á lesbískum konum, ástína í allri sinni dýrð, sambönd og sambandsslit, fordóma og fyrirmyndir.