Eldfjörugur, rómantískur gamanleikur þar sem spunnið er frjálslega út frá ævi leikskáldsins Williams Shakespeares. Leikritið, sem byggt er á Óskarsverðlaunamyndinni Shakespeare in Love, var frumsýnt á West End 2014 og naut mikilla vinsælda. Aron Már Ólafsson leikur Will og Lára Jóhanna Jónsdóttir leikur Víólu de Lesseps, aðalsmey sem dreymir um að verða leikari, á tímum þar sem samfélagið leyfir aðeins karlmönnum að stíga á svið. Fjöldi annarra leikara og tónlistarmanna tekur þátt í sýningunni, en um er að ræða stórsýningu þar sem horfið er aftur til Elísabetartímans í umgjörð og búningum.
Ástríðuþrungin ástarsaga, sem gerist á viðsjálum tímum þar sem stéttaskipting er mikil, valdabaráttan harðvítug og stutt er í að sverðin fari á loft! Bráðfyndið og fjörugt verk um eldheitar ástir, baráttuna fyrir því að fylgja köllun sinni í hörðum heimi listarinnar og snilligáfuna sjálfa.
Mán | Þrið | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
---|---|---|---|---|---|---|
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |