Útskriftarefni leikararbrautar LHÍ í samstarfi við tónlistadeild 2019 frumsýnir
MUTTER COURAGE EFTIR BERTOLT BRECHT
í leikstjórn Mörtu Nordal.
Mutter Courage er talið með bestu leikverkum 20. aldarinnar, og er eitt kröftugasta stríðsádeiluverk sögunnar. Það er viðeigandi að bekkur sem samanstendur að þremur fjórðu hlutum af konum rýni í þetta verk. Mutter Courage er mikil ádeila á stöðu konunnar í stríði, konunnar sem fær engu um framgang stríðsins ráðið en er fórnarlamb þess engu síður og missir allt sitt. Verkið á vel við þessa ungu kynslóð sem hefur verið í oddaflugi síðustu kven- og mannréttindabyltingar, þeirri er enn stendur yfir. Boðskapur hennar er einfaldur. Allir eru jafnir að verðleikum.
Verkið verður frumsýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri 9. maí, í Kassanum í þjóðleikhúsinu 16.maí og er unnið í samstarfi við Leikfélag Akureyrar og Þjóðleikhúsið. Sýningar hefjast kl. 20.
Útskriftarefnin sem taka þátt í uppfærslunni eru þau; Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Berglind Halla Elíasdóttir, Gunnar Smári Jóhannesson, Hildur Vala Baldursdóttir, Jónas Alfreð Birkisson, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Steinunn Arinbjarnardóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
Sævar Helgi Jóhannsson útskriftarefni í tónsmíðum frá tónlistardeild semur og flytur tónlist í verkinu.
Listrænir aðstandendur:
Leikstjóri: Marta Nordal
Leikmynd og búningar: Auður Ösp Guðmundsdóttir
Ljósahönnun: Ólafur Ágúst Stefánsson
Leikmyndasmíði og tækni: Egill Ingibergsson
Aðstoðarleik - og sýningarstjóri: Anna Katrín Einarsdóttir
Enginn aðgangseyrir - allir velkomnir
Sýningin er samstarfsverkefni Listaskóla Íslands, Þjóðleikhússins og Leikfélags Akureyrar.
Mán | Þrið | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
---|---|---|---|---|---|---|
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |