Tix.is

Þjóðleikhúsið

Um viðburðinn

Fortíðin bankar upp á. Lokkandi tilhugsun? Eða lamandi?

Ex er flugbeitt sálfræðidrama og annað verkið í splunkunýjum þríleik Mariusar von Mayenburg í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Benedicts Andrews.

Á fallegu heimili fyrirmyndarhjóna, arkítekts og læknis með tvö ung börn er bankað upp á um miðja nótt. Fyrir utan stendur fyrrverandi kærasta eiginmannsins og bráðvantar samastað eftir að hafa flutt út frá sambýlismanni sínum í miklum flýti. Fljótlega breytist heimilið í vígvöll þar sem ásakanir og uppljóstranir þjóta á milli eins og byssukúlur. Hvað dró þetta fólk hvert að öðru í upphafi? Hvort skiptir meira máli í hjónabandi til lengdar, ástríðan eða sameiginleg markmið, lífssýn og samfélagsstaða? Af vægðarleysi og sótsvörtum húmor er tekist á við ágengar spurningar um hjónabandið, ástina og tærandi afbrýðisemi, lífsorkuna og lífsleiðann, fjölskylduna, kynlífið og ofbeldið í samböndum fólks.