Um viðburðinn
Nemendasýning Dansstúdíó World Class
Lísa í Undralandi
Árleg nemendasýning Dansstúdíó World Class á stóra sviði Borgarleikhússins.
Nemendur samtvinna dans, leik og túlkun og fá þar með áhorfendur með sér í
undraveröld leikhússins.
Sýningin er byggð á ævintýrum Lísu í Undralandi. Um er að ræða klukkutíma sýningu þar sem allir nemendur skólans koma fram og sýna afrakstur vorannar. Dansstúdíó World Class leggur áherslu á að nemendur upplifi töfra leikhússins og öðlist reynslu í framkomu með því að koma fram á stóra sviðinu á hverju ári. Sýningin er vettvangur skólans í því skyni.
Danshópum er skipt niður á sýningar eftir þeim stöðvum sem þeir æfa með hjá dansskólanum.
Miðaverð: 2.800 kr.