Tix.is

ÍD

Um viðburðinn

ÞAÐ VERÐUR AÐ VERA GAMAN!

Það er bara ekkert skemmtilegra en gott partý! Geggjuð stemmning, vinir í glasi, gjafir, bestu lögin spiluð hátt, gott slúður og grillaðar pylsur á miðnætti. En það er hægt að klúðra þessu. Kannski leigir maður of stóran sal eða velur of flókið þema. Gleymdist að fá leyfi frá nágrönnunum? Er Sigrún frænka ekki of taugaveikluð til að vera veislustjóri? Veislur eru mikilvægur hluti af lífinu. Hugsið ykkur bara öll afmælin sem við höfum farið í, árshátíðirnar, útskrifarveislurnar, brúðkaupin, matarboðin, allar brauðterturnar og kransakökurnar sem við höfum innbyrt með freyðivíni eða beljurauðvíni í plastglösum á fæti sem tollir illa.

Dóra Jóhannsdóttir og Saga Garðarsdóttir eru með fyndnustu grínurum landsins og staðið fyrir uppistandi, spunaleikhúsi og hvers kyns leiklistargjörningum árum saman og m.a. verið höfundar Áramótaskaupsins. Hinn vinsæli Prins Pólo gerir tónlistina og Veisla verður því bragðgóð en görótt blanda af grínsketsum og tónlist sem svarar áleitnum spurningum á borð við hvort tartalettur séu góðar í alvörunni og hversu vel megi skemmta sér í erfidrykkjum.

#veislaiborgo

           

Höfundur Dóra Jóhannsdóttir Saga Garðarsdóttir

Leikstjórn Dóra Jóhannsdóttir

Leikmynd Eva Signý Berger

Búningar Eva Signý Berger

Lýsing Juliette Louiste

Tónlist Prins Póló

Leikgervi Guðbjörg Ívarsdóttir

Hljóð Þórður Gunnar Þorvaldsson

Myndband Elmar Þórarinsson

Leikarar Halldór Gylfason, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Saga Garðarsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir og Sigurður Þór Óskarsson,

Frumsýning 17. apríl 2020