Niflungahringurinn allur
Frumsýnt: 24. október Nýja svið
Stórvirki listasögunnar dregin saman í tveggja tíma hláturskast!
Enn og aftur eru þeir mættir í Borgarleikhúsið. Hundur í óskilum ríður aldrei vafurlogann þar sem hann er lægstur. Síðast fór hann flikkflakk og heljarstökk í öllum herklæðum í gegnum Njálu á hundavaði. Nú tekst hann á hendur að færa Íslendingum í fyrsta sinn allan Niflungahring Richards Wagners - eins og hann leggur sig.
Þetta epíska stórvirki sem tónskáldið samdi upp úr íslenskum fornaldarsögum er fjórar óperur: Rínargullið, Valkyrjan, Sigurður Fáfnisbani og Ragnarök og tekur að jafnaði jafn mörg kvöld í flutningi. En Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson ásamt Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur geysast með himinskautum í gegnum allt verkið á einni kvöldstund og má með sanni fagna því að loksins, loksins sé Niflungahringurinn allur kominn heim - á sjálfa sögueyjuna.
Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir en um leikmynd og búninga sér Þórunn María Jónsdóttir.
Höfundur: Hjörleifur Hjartarson
Söngtextar: Hjörleifur Hjartarson
Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir
Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir
Ljósahönnun: Gunnar Hildimar Halldórsson
Hljóðmynd: Þorbjörn Steingrímsson
Leikarar:
Eiríkur Stephensen
Hjörleifur Hjartarson
Katla Margrét Þorgeirsdóttir