Skip to content

Tix.is

ÍD

Um viðburðinn

Mávurinn er eitt stórbrotnasta leikrit rússneska leikskáldsins Antons Tsjékhovs. Það er eitt besta leikrit allra tíma, gamansamt og alvarlegt í senn. Mávurinn fjallar um lífið sjálft, en þó einkum um líf í listum, ástir og ástleysi. Símon elskar Maríu, María elskar Konna, sem elskar Nínu, sem elskar rithöfundinn sem elskar bara sjálfan sig. Vonlausir listamenn, virtir eða misheppnaðir, reyndir eða barnalegir, í upphafi ferils eða við endalok hans. Nístandi gamanleikur um spurninguna eilífu: Hvernig eigum við að lifa? Ógleymanleg, lju´fsár mynd af manneskjunni. Eins og alltaf þrá allir hið ómögulega, þrá breytingar fyrir tilstilli listarinnar eða ástarinnar.

Anton Pavlovitsj Tsjékhov er eitt mikilvægasta leikskáld allra tíma. Leikrit hans hafa verið á fjölum leikhúsa um allan heim sleitulaust síðustu eitthundrað tuttugu og fimm ár. Leikritið var frumsýnt í Alexandra-leikhúsinu í Moskvu árið 1896. Þetta er í fyrsta sinn sem Mávurinn er sýndur á fjölum Borgarleikhússins. Verkið var áður sýnt í Iðnó árið 1971 og í Þjóðleikhúsinu fyrir næstum aldarfjórðungi. Leikstjóri er litha´íska leikstýran Yana Ross sem vakið hefur mikla athygli bæði í heimalandi sínu og víða um heim ekki síst fyrir nýstárleg og kraftmikil tók á sígildum leikritum.

“Gamanleikrit, þrjú kvenhlutverk, sex karlhlutverk, fjórir þættir, landslag (með u´tsýni út á stöðuvatn), mikið rætt um bókmenntir, fátt gerist, slatti af ást.”

Höfundur: Anton Tsjékhov Leikstjóri: Yana Ross

Þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir Leikmynd: Zane Philström

Búningar: Filippía Elísdóttir

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson

Leikgervi: Árdís Bjarnþórsdóttir

Hljóð: Baldvin Þór Magnússon

Leikarar: Björn Stefánsson, Björn Thors, Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Snær Guðnason, Jóhann Sigurðarson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Guðrún Gísladóttir