Tix.is

ÍD

Um viðburðinn

Blóðheitar konur, hugrakkar hetjur og brennuvargar - en ekki alveg eftir bókinni

SÝNING ÁRSINS SNÝR AFTUR!

Njála er nýtt íslenskt leikverk sem byggir?á frægustu Íslendingasögunni sem hefur?lifað með þjóðinni í sjöhundruð ár, lesin í öllum menntaskólum landsins og sjaldan verið vinsælli en einmitt nú. Hún segir frá því hvernig við urðum að þjóð, og hetjur bókarinnar,?þau Hallgerður, Bergþóra, Gunnar, Skarphéðinn og Njáll, eru sveipuð goðsagnakenndum ljóma og hafa mótað og markað þjóðarsálina allt til þessa dags.

Leikhópurinn undir stjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar og Ernu Ómarsdóttur, danshöfundi og dansara, tjalda öllu til og nýta ótakmarkaða töfra leikhússins til að takast á við þessa stórbrotnu sögu í sýningu sem er í senn forvitnileg, ögrandi og litrík leikhúsveisla. Bardagar, ástir, hefndir og völd en umfram allt Njála eins og þú hefur aldrei séð hana áður! Sýningin hætti fyrir fullu húsi síðastliðið vor og Njálu-kjötsúpan sem leikhúsgestum gafst kostur á að gæða sér á fyrir sýningu sló rækilega í gegn ásamt skemmtilegum fyrirlestrum helstu Njálu- sérfræðinga landsins.

Stórsýningin Njála var sannkallaður sigurvegari Grímuhátíðarinnar 2016 og sópaði til sín tíu verðlaunum. Engin sýning í sögu Grímuverðlaunanna hefur hlotið jafn margar Grímur. Þorleifur Örn Arnarsson hefur getið sér gott orð sem afkastamikill leikstjóri hérlendis og erlendis. Mikael Torfason er blaðamaður og rithöfundur og vakti fyrst athygli með skáldsögunni Falskur fugl sem kom út árið 1997, síðan hefur hann sent frá sér fjórar skáldsögur og leikritið Harmsögu.

Erna Ómarsdóttir er einn virtasti dansari og danshöfundur Íslendinga og hafa verk hennar verið sýnd á hinum ýmsu dans- og listahátíðum víða um heim.

Samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins

Höfundar: Erna Ómarsdóttir, Mikael Torfason og Þorleifur Örn Arnarsson

Leikstjórn: Þorleifur Örn Arnarsson
Danshöfundur: Erna Ómarsdóttir
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir
Búningar: Sunneva Ása Weisshappel
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tónlistarstjórn: Árni Heiðar Karlsson
Tónlist: Árni Heiðar Karlsson og Valdimar Jóhannsson
Hljóðmynd: Valdimar Jóhannsson og Baldvin Þór Magnússon
Hljóð: Baldvin Þór Magnússon
Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir
Píanó- og hljómborðsleikur: Árni Heiðar Karlsson
Sérstök gervi: Elín S. Gísladóttir
Rapptexti: Salka Valsdóttir og Þuríður Blær Jóhannsdóttir
Aðstoð við dramatúrgíu: Uwe Gössel
Aðstoðarleikstjórn: Gunnur M. Schlüter
Aðstoðardanshöfundur: Valgerður Rúnarsdóttir

Leikarar: Aðalheiður Halldórsdóttir,?Björn Stefánsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Jóhann Sigurðarson, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Valgerður Rúnarsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir