Þjóðin er
orðin veisluþyrst og Veisla er kærkomin vökvun eftir langa þurrð. Á meðan heimsfaraldri stendur kemst þjóðin ekki í neina stóra veislu. Hugsa
sér öll afmælin sem enginn getur mætt í, árshátíðirnar, útskriftarveislurnar, brúðkaupin, kóra- mótin og matarboðin. Að ekki sé minnst á alla óbökuðu heitu brauðréttina og kransakökurnar sem aldrei
verða snæddar eða freyðivínið sem aldrei verður dreypt á úr plastglösum á völtum
fæti. Þá eru ótalin löngu trúnóin við hálfókunnugar konur, slúður um
valdamikið fólk, hátt spiluð lög og grillaðar pylsur á miðnætti. Þjóðin á inni risa summu í Gleðibankanum og við bjóðum áhorfendum í allt sem þeir
hafa misst af í einni
stórkostlegri Veislu í Borgarleikhúsinu.
Hér sameina krafta sína þau Bergur Þór Ingólfsson, þaulreyndur
leikhúsmaður og Saga Garðarsdóttir, fyndlistakona, en síðast unnu
þau saman við hina geysivinsælu sýningu Kenneth Mána sem frumsýnd var á Litla sviði Borgarleikhússins árið 2014. Partýpinninn Berndsen gerir
tónlistina og Veisla verður því bragðgóð en göldrótt blanda af grínsketsum
og tónlist sem svarar áleitnum spurningum á borð við hvort tartalettur séu
góðar í alvörunni og hversu hratt skuli ganga um gleðinnar dyr. #veislaiborgo
Höfundar: Saga Garðarsdóttir og leikhópurinn
Leikstjórn: Bergur Þór IngólfssonLeikmynd og búningar: Eva Signý BergerLýsing: Ingi BekkTónlist: BerndsenHljóð: Þórður Gunnar ÞorvaldssonMyndband: Elmar ÞórarinssonLeikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir
Leikarar: Halldór Gylfason, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Saga Garðarsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir og Sigurður Þór Óskarsson