Tix.is

ÍD

Um viðburðinn

“In the dark times
Will there also be singing?
Yes, there will also be singing.
About the dark times.”
? Bertolt Brecht

 

Vetrarnætur eru langar og myrkar. Athygli okkar beinist inn á við og þá er fallegt að syngja spurningarnar sem við stöndum frammi fyrir, dansa þær.

 

Getum við svarað þeim öllum?
Þurfum við svör, er kannski nóg að að spyrja?
Hvernig segjum við sögu okkar, umbeðin?
Hvernig lýsum við einkennum okkar?
Hvað ef við gætum ekki tjáð hug okkar og hjarta með orðum?

 

Verk hins belgíska danshöfundar Pieter Ampe fjallar um manneskjur sem verja drjúgum tíma saman; það fjallar um 8 dansara sem allir hafa sína sögu að segja.
Hvað segja þær okkur um samtímann?


Hugmynd og danshöfundur: Pieter Ampe
Tónlist, samsetning og raddþjálfun: Jakob Ampe