Tix.is

Hljómahöll

Um viðburðinn

Langþráður draumur Más að verða að veruleika!

Már Gunnarsson heldur veglega útgáfutónleika 12 apríl. Með honum á sviðinu verður 7 manna hljómsveit aðallega skipuð af færustu hljóðfæraleikurum Póllands sem gera sér ferð til Íslands fyrir þetta tilefni. Það er með sannri ánægju að við tilkynnum að ein þekktasta poppsöngkona Póllands Natalia Przybysz mun mæta og taka þátt í að gera þetta kvöld ógleymilegt! Einnig koma fram Villi Naglbítur, Ísold Wilberg, Ívar Daníels og Gísli Helgason. Már hefur þrátt fyrir ungan aldur vakið mikla athygli undanfarin ár fyrir lagasmíðar, píanóspil ,söng og velgengni í sundi. Sumarið 2018 flaug Már til Póllands til þess að taka upp sína fyrstu plötu sem nefnist Söngur fuglsins. Útsetjarinn Hadrian Tabecki stjórnaði upptökum og lagútsetningum. Má að auki nefna að Hadrian er einn eftirsóttasti útsetjari þar í landi. Á tónleikunum verður farið yfir lögin af plötunni auk valinna þekktra laga. Má þar nefna kvöld-siglingu en hver er ekki betri að spila það en höfundurinn sjálfur Gísli helgason. Almennt verður tónlistarstíllinn mjög fjölbreyttur og vonandi eitthvað fyrir alla t.d. Rock pop country Latino rapp dægurtónlist og instrumental Music. Húsið og barinn opnar á slaginu kl 19:00 en Sýningin hefst kl 20:00 og stendur yfir í tæpar 2 klst með 15 mínútna hléi. Við hlökkum mikið til og vonumst til að sjá sem flesta.

Öll lögin af plötunni eru samin af Má, flestir textarnir eru eftir Tómas Eyjólfsson.

Einnig að textagerðinni koma Villi Naglbítur, Már og Ísold.

Að framkvæma svona verkefni er í alla staði lærdómsríkt og ég vona að platan nái til ykkar og gleðji!

Kveðja, Már.



Húsið og barinn opnar á slaginu kl 19:00

Tónleikarnir hefjast svo kl 20:00 og standa yfir í tæpar 2 klst, með 15 mínútna hléi.