Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Múlinn Jazzklúbbur: Bölvað braz
Arnljótur Sigurðsson, flauta og rafgítar
Eiríkur Orri Ólafsson, trompet
Samúel Jón Samúelsson, básúna og slagverk
Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, básúna, fiðla og slagverk
Magnús Jóhann Ragnarsson, hljómborð
Tómas Jónsson, hljómborð
Andri Ólafsson, bassi
Magnús Trygvason Eliassen, trommur
Kristófer Rodríguez Svönuson, slagverk

Að kvöldi annars sumardags ætlar hrynheitur hópur tónlistarfólks að gera út frá Brasilíu og reiða fram suðurameríska tónlist ýmiss konar. Þótt samban komi töluvert við sögu verður tækifærið nýtt rækilega til að grúska og grúva í fleiri stílum (choro, baião, afoxê og xote þar á meðal), og verða tónarnir bornir fram á rafhljóðfærabeði.