Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Miðar á staka tónleika (10.999 - 14.999 kr.) fara í sölu föstudaginn 28. febrúar kl. 18:00.

Kauptu passa HÉR.

Rokkhljómsveitin Explosions in the Sky lýkur 20 ára afmælistónleikaferð sinni, sem legið hefur um víða veröld og tekið tvö ár, með tónleikum í Eldborg í Hörpu dagana 7., 8. og 9. ágúst. Á þrennum tónleikum líta þeir yfir farinn veg og flytja vel valdar gersemar fyrir tónleikagesti.

Hljómsveitin Explosions In The Sky sprettur upp úr sjóðheitu stórborgarlandslagi Austin, Texas. Liðsmenn sveitarinnar einhverjir þeir einlægustu í bransanum, einstök gæðablóð og einfaldlega góðir strákar. Tónlistin þeirra er ástríðufull og kraftmikil og lætur engan ósnortinn. Þeirra aðalsmerki eru fallegar laglínur, rómantískar og stundum harmrænar, sem spinnast upp í þéttan og hrífandi tónavef. Á sviði er hljómsveitin í essinu sínu, ein besta tónleikasveitin nú um stundir og hljóðheimur hennar allt eins magnaður og nafnið gefur til kynna.