Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Múlinn Jazzklúbbur: Bara Gaman
Tumi Árnason, saxófónn
Magnús Jóhann, píanó og hljómborð
Mikael Máni Ásmundsson, gítar
Valdimar Olgeirsson, bassi
Bergur Einar, trommur

Nokkur af ungu ljónum Íslandsjazzins koma hér saman til að hafa gaman af því að flytja orkumiklan og melódískan samtímajazz. Hljómsveitin Bara gaman er nýstofnuð hljómsveit fimm ungra tónlistarmanna sem allir koma úr sama umhverfi en hafa þó farið í ólíkar áttir á sínum ferli. Þeir eru virkir í tónlistarlífinu á Íslandi þar sem þeir leika allt frá poppi til tilraunartónlistar. Hljómsveitin spilar tónlist eftir alla hljómsveitarmeðlimi sem fellur undir hina stóru jazzregnhlíf.