Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Þar sem ekki verður unnt að halda tónleikana þann 27. ágúst 2021 eins og til stóð hafa þeir fengið nýja dagsetningu.
Ný dagsetning er laugardagurinn
 23.apríl 2022 og gildir miðinn áfram.

Miðahafar fá sendan tölvupóst með frekari upplýsingum, athugið að pósturinn getur lent í ruslhólfi. 

Hljómsveitin Valdimar fagnar 10 ára afmæli árið 2020 og hefur í tilefni þess ákveðið að blása til stórtónleika í Eldborgarsal Hörpu.

Frá útgáfu fyrstu plötu þeirra árið 2010 hefur mikið vatn runnið til sjávar og plöturnar orðnar fjórar. Tónleikagestum gefst færi á að heyra vel valin lög af öllum plötum sveitarinnar og sögurnar á bak við þau, en mörg hver heyrast sjaldnast á tónleikum.  

Ljóst er að Valdimar hefur aldrei verið verið glæsilegri en akkurat á 10 ára afmælinu.

Aðeins um eina tónleika er að ræða svo við hvetjum þig til að tryggja þér miða í tæka tíð.