Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Árleg jólasýning Dansstúdíó World Class fer fram laugardaginn 30. nóvember í Silfurbergi. Þetta er í fyrsta skipti sem danssýningin fer fram í Hörpu og er tilhlökkunin hjá nemendum mikil. Allir nemendur skólans koma fram og sýna atriði með sínum danshóp. Frábær stemning myndast alltaf á sýningunum enda er þetta einn skemmtilegasti dagur ársins í starfsemi skólans.

Tvær sýningar fara fram yfir daginn og er danshópum skipt niður á sýningar:

Sýning 1 kl.12.00
Allir nemendur í Egilshöll, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Selfossi.

Sýning 2 kl.16.00
Allir nemendur í Laugum, Seltjarnarnesi, Smáralind og Ögurhvarfi